Inga sendir skýr skila­boð: „Ég mun aldrei láta þagga niður í mér“

„Í ná­granna­löndum okkar er talað af fullri al­vöru um hættuna. Það mun ég líka gera og aldrei láta þagga niður í mér,“ segir Inga Sæ­land, þing­maður og for­maður Flokks fólksins.

Inga hefur vakið tals­verða at­hygli að undan­förnu í um­ræðunni um Co­vid-19 kóróna­veiruna. Talaði hún meðal annars fyrir því að sótt­kví yrði komið upp í Egils­höll og þá hefur hún hvatt til harðari að­gerða til að tak­marka út­breiðslu veirunnar.

Inga skrifar grein um málið sem birtist í Morgun­blaðinu í dag og er ó­hætt að segja að hún hafi á­hyggjur af stöðunni.

„Kórónu­veiran Co­vid-19 fer nú eins og logi um akur heims­byggðarinnar. Sýktum til­fellum fjölgar stöðugt. Nú hefur veikin greinst í um 70 löndum. Al­þjóða­heil­brigðis­stofnunin dregur lappirnar við að lýsa yfir heims­far­aldri þó Co­vid-19 upp­fylli tvö af þeim þremur skil­yrðum sem til þurfa að koma svo það megi verða,“ segir Inga sem tíundar umrædd skil­yrði. Í fyrsta lagi smitast veiran milli manna, í öðru lagi sé hún ban­væn og í þriðja lagi þurfi hún að finnast um heim allan. Þannig sé staðan í dag.

Inga nefnir svo nokkrar tölur um út­breiðslu veirunnar og dánar­tíðni. Hún segir að dyrnar fyrir smit hér á landi hafi staðið gal­opnar að undan­förnu, en eins og greint hefur verið frá eru nú níu manns með veiruna hér á landi. Þá eru hátt í 300 manns í sótt­kví. Inga kallar eftir sam­stöðu til að hægt sé að koma í veg fyrir far­aldur um allt land.

„Gagn­vart slíkri vá þjónar engum til­gangi að tala niður hættuna sem af henni stafar. Við verðum að nálgast vandann af yfir­vegun og raun­sæi. Fólk fer ekki var­lega nema það viti hvað er í húfi. Nú ætti þetta kannski ekki að vera svo al­var­legt mál að sumra mati sem segja að þetta sé nú bara eins og hver önnur flensa. Dánar­tíðnin segir þó allt annað,“ segir Inga og nefnir að af þeim 90 þúsund sem hafa fengið veiruna hafi um þrjú þúsund dáið.

Inga skýtur svo á Óttar Guð­munds­son geð­lækni sem hefur sagt að frá­sagnir fjöl­miðla um kórónu­veiruna sé orðnar eins og í­þrótta­keppni. „Hversu margir hafa veikst og hve margir dáið. Þetta er fyrsta frétt í öllum frétta­tímum,“ sagði hann í pistli í Morgun­blaðinu fyrir helgi.

Inga gagn­rýnir þennan mál­flutning.

„Samt gerir jafn­vel menntaður og hingað til al­mennt virtur læknir lítið úr því sem nú stendur fyrir dyrum og getur þróast í stór­slys. Ég sem kjörinn full­trúi sæti jafn­vel ó­beinu á­mæli og er mætt með fyrir­litningu í ríkis­fjöl­miðlinum RÚV fyrir það að ég skuli dirfast að spyrja spurninga og veita stjórn­völdum að­hald í þessu máli. Það er alveg ljóst að staðan er al­var­leg. Í ná­granna­löndum okkar er talað af fullri al­vöru um hættuna. Það mun ég líka gera og aldrei láta þagga niður í mér.“