Inga sæland vill að tryggingarstofnun greiði allan kostnað við erlendar millifærslur

Flokkur fólksins hefur lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um almannatryggingar. Nái frumvarpið fram að ganga mun Tryggarstofnun greiða allan kostnað sem hlýst af framkvæmd vegna greiðslna til lífeyrisþega, einnig greiðslur sem sendar eru erlendis.

„Þetta frumvarp er ekki síst fram komið vegna þeirrar staðreyndar að sífellt algengara er að lífeyrisþegar flytjist til útlanda. Í þeim tilvikum fá þeir gjarnan greiðslur frá Tryggingastofnun inn á erlenda bankareikninga. Slíkar fjármunafærslur milli landa kosta þó talsvert meira en hefðbundnar millifærslur innan Íslands. Því verða þeir lífeyrisþegar fyrir skerðingu á réttindum sínum á grundvelli búsetu,“ segir Inga Sæland. 

Í frumvarpi Flokks fólksins er lagt til að Tryggingastofnun greiði allan þann kostnað sem stafar af greiðslu opinberra réttinda 

„Benda má einnig á að Tryggingastofnun er í ágætri aðstöðu til þess að semja við viðskiptabanka um lægri kostnað á slíkum millifærslum, en ella stendur einstaklingum til boða,“ segir Inga Sæland.