„Fyrirhugaðar breytingar sjávarútvegsráðherra um að taka upp svæðaskiptingu á kvóta strandveiðanna á nýjan leik er atlaga að brothættum sjávarbyggðum landsins,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og bætir við að ákvörðunin sé óskiljanleg.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Ingu í Morgunblaðinu í dag.
Að sögn Ingu fordæmir Flokkur fólksins þessar hugmyndir Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra.
„Flokkur fólksins minnir á að strandveiðikerfinu var komið á af hálfu ríkisstjórnar til að bregðast við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, sem taldi kvótakerfið brjóta á mannréttindum sjómanna. Sjávarútvegsráðherra er með fyrirhuguðum breytingum að ganga gegn jafnræði til veiða sem strandveiðunum var ætlað að tryggja,“ segir Inga jafnframt og heldur áfram: „ Ráðherrann vill ganga hér svo miklu mun lengra í sérhagsmunagæslu fyrir kvótakónga en nokkurn skyldi gruna. Að sama skapi er einbeittur vilji ráðherrans að ganga freklega gegn hagsmunum strandveiðisjómanna og brothættum sjávarbyggðum.“
Inga segir baráttu fyrir frjálsum strandveiðum vera mannréttindabaráttu, baráttu fyrir atvinnufrelsi og búseturétti. Þá megi takmarkanir á atvinnufrelsi ekki ganga lengra en nauðsyn krefur og gæta verður að meðalhófi og jafnræði.
„Sjávarútvegsráðherra gerir það ekki með því að taka aftur upp svæðaskiptingu og úthluta afla á hvert svæði. Þar er einungis verið að deila og drottna og valda togstreitu á milli svæða. Forsætisráðherra, sem skreytir sig sem baráttumann fyrir mannréttindum, hefur ekki lyft fingri þegar kemur að réttindum íbúa sjávarbyggðanna til strandveiða. Þar hafa máttlaus dygðaskreytingalög sætt forgangi, sem líklega mun aldrei reyna á,“ segir Inga og bætir við að Flokkur fólksins berjist fyrir frjálsum handfæraveiðum.
Að sögn Ingu eru strandveiðar grundvöllur fyrir tilvist sjávarbyggðanna í kringum landið. „Algjört lágmark er að sú sátt sem náðist á síðasta kjörtímabili um núverandi strandveiðikerfi með 48 daga til veiða sé tryggð.“
Þá ítrekar Inga að frjálsar strandveiðar muni aldrei ógna lífríkinu í kringum landið.
Hægt er að lesa grein Ingu í heild sinni hér.