Inga sæland reið og fordæmir rúv: neitar að hafa kallað magneu morðingja

„Ríkisútvarpið sem á að vera vettvangur skoðanaskipta og umræðu í samfélagi okkar hefur brugðist þeirri skyldu sinni að fjalla um nýtt fóstureyðingafrumvarp heilbrigðisráðherra. Nánast engin samfélagsumræðu hefur farið fram um þetta mál þó ljóst sé að það er bæði viðkvæmt og afar umdeilt.“

Þetta segir Inga Sæland í yfirlýsingu. Þar fordæmir hún vinnubrögð RÚV en hún sakar fréttastofuna um að hafa í viðtali í gærkvöldi við Magneu Helgadóttur gefið í skin um að Inga hefði látið þau ummæli falla að Magnea hefði verið kölluð morðingi. Magnea var 21 árs þegar hún varð þunguð af sínu fyrsta barni. Eftir rúmlega 19 vikna meðgöngu kom í ljós við ómskoðun að fóstrið væri með vatnshöfuð, og einungis einn þriðji hluti annars heilahvelsins væri með heilavef.

„Það myndi aldrei yfirgefa spítalann, þetta væri barn sem yrði bundið við spítalann allan tímann, yrði með slöngur í höfðinu til þess að losa af þrýsting af höfðinu á því,“ sagði Magnea og bætti við. „Það var ekki að fara að tala, það var ekki að fara að labba, það myndi ekki einu sinni vita hver ég væri. Ég gæti ekki einu sinni útskýrt fyrir barninu af hverju það væri á spítala og af hverju það væri að kveljast. Og við komumst að þeirri niðurstöðu að við myndum ekki vilja láta barnið okkar þjást, það væri betra að binda enda á þetta, leyfa henni að fara í friði.“ 

Magnea og maðurinn hennar óskuðu því eftir þungunarrofi og var leyfi gefið á 21 viku. Um frumvarpið sem vakið hefur harðar deilur á Alþingi sagði Magnea að það væri erfitt að sitja undir þeim orðum sem hefði verið látin falla.

 „Það er ofboðslega erfitt að sætta sig við það að vera kallaður morðingi. Mín saga er á bak við hverja einustu fóstureyðingu, eins og fólk vill kalla þetta, sem er framkvæmd eftir 14. viku meðgöngu. Þú ert að tala um fólk sem er með rosa sorg í hjarta sér, og mun bera alla sína ævi, og að einhver skuli kalla þetta sama fólk - mig - morðingja. Það er mjög erfitt að sitja undir því. Það er bara ekki sanngjarnt.“

Inga Sæland er afar ósátt við viðtalið og segir í yfirlýsingu: „Í kvöldfréttum gærdagsins, kvöldið áður en lokaatkvæðagreiðsla í þessu erfiða og viðkvæma máli fer fram á þingi, kaus fréttastofa Ríkisútvarpsins að senda út sjónvarpsviðtal við móður barns sem hafði séð sig tilneydda til að fara í fóstureyðingu. Þarna kaus fréttastofan að fjalla um jaðartilfelli harms og sársauka í því skyni að búa til réttlætingu fyrir því að skilyrðislaust verði heimilt að eyða fóstrum allt til fram að 23. viku meðgöngu.“

Þá segir Inga: „Fréttastofan hefur aldrei á neinum tímapunkti reynt að varpa ljósi á önnur tilfelli ljóss og gleði þar sem fyrirburar hafa lifað og vaxið upp sem heilbrigð börn. Í síðustu viku sendi ég fyrir hvatningu og með samþykki foreldra öllum fjölmiðlum eitt slíkt dæmi með ljósmyndum. Fréttastofa Ríkisútvarpsins sá enga ástæðu til að fjalla um það.“

Inga segir að lokum: „Fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur ekki gefið mér kost á neinu tækifæri til að svara fyrir þá ásökun sem kom fram í ofangreindu sjónvarpsviðtali í gærkvöldi, að konan hefði verið kölluð morðingi. Í þessari frétt var hins vegar með ísmeygilegu myndmáli augljóslega gefið til kynna að ég væri sek um að hafa látið slík orð falla. Það hef ég aldrei gert,“ segir Inga og bætir við:

„Með þessari yfirlýsingu fordæmi ég vinnubrögð fréttastofu Ríkisútvarpsins“