Inga sæland gekk um holtið og fannst hún blessuð: sendir rætnum lygurum og slúðurberum bros

„Ég gekk um í Holtinu í dag. Veðrið ólýsanlega gott. Hlýr og mildur andvari sem umvafði mig ásamt fögrum fuglasöng, dirrindí, dirrindí. Það eru mínar bestu stundir þegar ég fæ tækifæri til að njóta náttúrunnar í allri sinni dýrð. Það er gott að láta hugann reika, sérstaklega þegar maður getur horft glaður um öxl.“

Þannig hefst pistill eftir Ingu Sæland formann Flokks fólksins í Morgunblaðinu í dag. Þar fer Inga Sæland yfir stærstu málin sem flokkur hennar hefur komið að á þinginu. Segir Inga að hún og Guðmundur Ingi Kristinsson, hinn helmingurinn af þingflokknum ætli að útrýma fátækt og skerðingum. Inga segir:

„Við eigum það sameiginlegt að þekkja það mannvonskukerfi sem tugir þúsunda samlanda okkar þurfa að reiða sig á og búa við. Við ætlum að breyta því saman. Við ætlum að útrýma fátækt, við ætlum að útrýma öllum skerðingum, við viljum, við ætlum, við getum.“

Þá segir Inga: „Mér finnst ég blessuð. Líka gagnvart illum tungum, rætnum lygurum og bara öllum illa innrættum slúðurberum. Ég sendi þeim öllum bjartsýni og bros og vona að þeir geti líka notið fegurðarinnar allt um kring.“

Þá gagnrýnir Inga Sæland Ásmund Einar Daðason velferðarráðherra sem í kjölfar Hæstaréttadóms óskaði eftir því við Hæstarétt að heimilt verði að áfrýja dómi í máli Sigríðar Sæland Jónsdóttur, móður Ingu sem sneri að útborgun lífeyris en skerðingi sem ellilífeyrisþegar landsins urðu fyrir nam um fimm milljörðum. Inga Sæland segir:

„Allir þeir sem eiga rétt á greiðslum úr lífeyrissjóði hvort heldur um er að ræða aldraða eða öryrkja eiga þennan dóm.“