„Fyrirtæki sem fá að njóta markaðsráðandi stöðu eiga að hafa samfélagslegar skyldur,“ sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í ræðu á Alþingi í dag.
Þar ræddi hún um þá ákvörðun Pennans/Eymundsson að taka bækur bókaútgáfunnar Uglu úr sölu og endursent þær útgáfunni. Jakob F. Ásgeirsson, stofnandi og eigandi Uglu, gagnrýndi þetta harðlega í Morgunblaðinu í morgun og sagði ástæðuna vera þá að bækur Uglu séu aðgengilegar á hljóðbókaveitunni Storytel.
Inga Sæland segir að frétt Morgunblaðsins hafi gert hana verulega hugsi. „Þetta gerist umorðalaust og án nokkurra viðvarana,“ segir Inga en Jakob taldi að bækurnar hefðu verið teknar úr sölu í einskonar refsingarskyni fyrir að selja bækurnar einnig sem hljóðbækur hjá Storytel.
„Slíkt hafa margar útgáfur gert að undanförnu. Mikil og vaxandi eftirspurn virðist eftir slíku hjá neytendum, það fólki sem hlustar á hljóðbækur, og er ég í þeim hópi enda með mjög skerta sjón. Nú kemur fram í sömu Morgunblaðsfrétt að forstjóri Eymundsson hafni þessari skýringu,“ sagði Inga en Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, tjáði sig ekki efnislega um málið í samtali við Morgunblaðið í morgun.
„En eitt um það, þá er mjög alvarlegt ef að markaðsráðandi fyrirtæki í miðlun prentmáls eigi að geta haft sína hentisemi um það hvað hvaða bækur hann bjóði til sölu. Bókaútgáfa er mjög mikilvægur hluti af stjórnarskrárvörðu tjáningarfrelsi í þessu landi, auk þess sem bækur sinna miklu hlutverki í menningu og þjóðmálaumræðu. Fyrirtæki sem fá að njóta markaðsráðandi stöðu eiga að hafa samfélagslegar skyldur. Svona gera menn bara ekki, það er að ráðast á litla útgáfu sem hefur staðið sig mjög vel og meðal annars gefið út margar perlur heimsbókmenntanna á undanförnum árum.“
Inga sagði að fyrir utan þetta væri það ótækt, ef rétt reynist, að fákeppnirisi á markaði reyni að stýra aðgengi neytenda að tilteknum vörutegundum, í þessu tilfelli hljóðbókum í streymi á netinu. „Við sem löggjafi hér á hinu háa Alþingi, eigum að fylgjast grannt með þessu máli,“ sagði hún.