Flokkur fólksins, undir forystu Ingu Sædal, nálgast óðum takmarkið að koma að þingmönnum. Flokkur fólksins mælist nú með 3,8 prósent. Fimm prósent þarf til að ná inn þingmönnum.
Allt bendir til að Inga hafi þegar tryggt flokknum sínum umtalsverðan ríkisstyrk að loknum kosningum, til þess þarf að ná 2,5 prósentum.
Aðrir smærri flokkar eru langt frá þeim markmiðum sem eru innan seilingar hjá Flokki fólksins.