Inga harðorð: „Við áttum að stöðva allt flæði fólks“ - Veiran boðin velkomin

„Ég styrkist stöðugt í þeirri trú að grípa hefði átt til harðari að­gerða strax í upp­hafi,“ segir Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins. Inga hefur talað fyrir því að grípa til harðari að­gerða til að hefta út­breiðslu CO­VID-19 veirunnar. Eins og greint hefur verið frá hefur Donald Trump Banda­ríkja­for­seti á­kveðið að banna flug til og frá þeim ríkjum Evrópu sem eru aðilar að Schen­gen.

Inga skrifar um málið í Morgun­blaðið í dag, en lík­legt er að Inga hafi stungið niður penna áður en Trump til­kynnti um bannið.

Í grein sinni bendir hún á að fyrsta kórónu­smitið hafi greinst hér á landi þann 28. febrúar síðast­liðinn og að­eins hálfum mánuði síðar séu þau orðin tæp­lega hundrað. Hún segist enn sann­færðari en áður að grípa hefði átt til harðari að­gerða.

Vildi stöðva flæði fólks

„Við áttum auð­vitað að stöðva allt flæði fólks til og frá sýktum svæðum. Hvað þá þegar veiran var farin að flæða yfir Evrópu og nálgaðist landið okkar sem logi um akur. Svona tíma­bundnar að­gerðir hefðu vissu­lega orðið ó­þægi­legar og valdið tjóni. Vitan­lega hefði ríkið þurft að koma til móts við þá sem hefðu orðið fyrir tekju­missi af þeim völdum. Fórnar­kostnaður hefði þó að­eins orðið brot af því sem við stöndum frammi fyrir nú, ef á­fram heldur sem horfir.“

Inga segir að stjórn­völd í ná­granna­löndum okkar hafi blásið í her­lúðra og séu komin í stríð við veiru sem þau ætla að sigra með öllum til­tækum ráðum.

„Á meðan eru ís­lensk stjórn­völd að beina vin­sam­legum til­mælum án þess að taka af­gerandi á­kvarðanir. Stjórn­völd sem fela sig bak við em­bættis­menn og þora ekki að taka á­kvarðanir sem virka. Hvað eiga þessi vinnu­brögð að þýða?


Nýttum ekki öflugasta vopnið


Inga nefnir svo nokkur dæmi um að­gerðir annarra ríkja til að hefta út­breiðslu veirunnar.

„Rússar lokuðu strax landa­mærum sínum að Kína. Bönnuðu síðar Kín­verjum að koma til landsins. Í Bergen, næst­stærstu borg Noregs og einni mestu ferða­manna­borg þar í landi, er nú búið að banna far­þegum skemmti­ferða­skipa að fara í land. Stórri fjöl­þjóða her­æfingu í Norður-Noregi hefur verið af­lýst. Há­skóla­sjúkra­húsið í Ósló bannar starfs­fólki sínu að fara í ferða­lög. Byrjað er að loka skólum og söfnum, og hætta skal fjöl­mennum fyrir­lestrum. Pestin eykst hröðum skrefum á Spáni. Pól­land með tæp­lega 30 smitaða lokar öllum skólum, leik­húsum, kvik­mynda­húsum og söfnum. Á Ítalíu eru allir í­búar, 60,5 milljónir manna, nánast í stofu­fangelsi. Landið er lamað. Evrópu­þingið hefur lagt niður störf alla næstu viku. Al­þjóða við­skipta­stofnunin WHO af­lýsir öllum fundum næstu tíu daga. Ind­verjar með 50 smit banna komu fólks frá Þýska­landi, Frakk­landi og Spáni.“

Hún segir að Ís­land, með sín tæp­lega hundrað smit, haldi enn öllu opnu og far­þega­flug­vélarnar streymi til landsins.

„Við nýtum ekki okkar öflugasta varnar­vopn, sem hefði verið að skrúfa fyrir allar ferðir til og frá landinu nema í brýnustu nauð­synjum, sam­hliða miklu bein­skeyttari að­gerðum innan­lands. Að­gerðir sem grípa átti til strax til að forðast marg­falt meira tjón til lengri tíma litið. Þessi vin­sam­legu til­mæli sótt­varna­læknis og teymis hans eru ein­fald­lega ekki að virka, frekar en að heil­brigðis­kerfið hafi verið í stakk búið að taka á móti veiru sem í raun var boðin vel­komin án nokkurrar mót­spyrnu. Við tryggjum ekki eftir á!“