Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er síður en svo sátt með kótelettur sem hún verslaði í matinn. Raunar segist hún hafa lent í vörusvikum því það sem hún stóð í góðri trú með að væru kótelettur reyndust vera framhryggjabitar.
Inga greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni og skrifaði þar undir:
„Ég var í góðri trú og keypti þetta sem kótelettur, sjá ekki vörusvikin fyrr en ég tók upp úr pokanum.“
Þá birti hún einnig mynd af umræddum „kótelettum“ og skrifaði í framhaldinu.
„Ef við neytendur berjumst ekki fyrir réttindum okkar þá gerir það enginn fyrir okkur.“
Færsla Ingu hefur vakið upp ómæld viðbrögð en nú þegar hafa rúm 114 ummæli birst undir henni og eru flestir sammála um að umræddir kjötbitar séu alls ekki kótelettur.