Inga: „Ég trúi því ekki að fólk sjái ekki óréttlætið og mismunina sem þarna blasir við“

„Ég trúi því ekki að fólk sjái ekki óréttlætið og mismunina sem þarna blasir við,“ segir Inga Sæland um samþykki tillögu um eingreiðslu til örykja en ekki tillögu hennar um sambærilega eingreiðslu til eldra fólks.

Þetta kemur fram í nýjum skoðanapistli Ingu sem birtist í Morgunblaðinu.

„Þetta er eldra fólk sem áður var ör­yrkj­ar og umbreytt­ist á einni nóttu í 67 ára full­fríska ein­stak­linga sam­kvæmt skil­grein­ingu lag­anna. Á svip­stundu lækkuðu líf­eyr­is­greiðslur til þeirra sem áður höfðu fengið greitt viðbótar­fram­lag frá TR vegna ald­ur­stengdr­ar ör­orku,“ segir Inga jafnframt í pistli sínum og bætir við að í þessum hópi fátækustu eldri borgara landsins séu einnig fullorðnar konur, ömmur og langömmur sem eyddu öllum sínum starfsæviárum í það að vera heimavinnandi húsmæður. „Þess­ar kon­ur eiga þar af leiðandi eng­in líf­eyr­is­sjóðsrétt­indi.“

Inga segist einnig hafa lagt til breytingartillögu við fjáraukann upp á 150 milljónir króna til hjálparstofnana sem styðja við þá sem eiga bágast í samfélaginu.

„Það er at­hygl­inn­ar virði að sjá hvernig raun­veru­lega er litið á þá sem stjórn­völd halda í það sárri fá­tækt að þau neyðast til að standa í löng­um röðum fyr­ir fram­an hjálp­ar­stofn­an­ir til að biðja um mat. Þörf­in er slík að ekki er hægt að anna allri þeirri eft­ir­spurn sem óskað er. Oft þarf að loka á þá sem eru aft­ast­ir í röðinni þar sem mat­ur­inn er upp­ur­inn í það skiptið. Þannig verða marg­ir frá að hverfa án þess að fá mat fyr­ir sig og börn sín,“ segir Inga og heldur áfram:

„Með til­liti til þess hvernig hægt er að ausa pen­ing­um millj­arðatuga­vís eins og að mublera upp Seðlabank­ann og dytta að hon­um fyr­ir ríf­lega þrjá millj­arða króna. Eins og að óska eft­ir sex millj­örðum til að fjár­festa í Snob Hill við Aust­ur­bakka (nýju Lands­banka­höll­inni). Eins og að ausa millj­örðum í stóla­skipti ráðuneyta. Eins og að tapa stór­fé úr rík­is­sjóði með lækk­un banka­skatts. Eins og að tapa millj­örðum með því að sækja ekki aukna fjár­muni til stór­út­gerðar sem hef­ur makað krók­inn á sam­eig­in­legri auðlind okk­ar. Hvorki meira né minna en 533 millj­arðar króna frá 2009 í hrein­an hagnað sjáv­ar­út­vegs­ins og þá búið að greiða fyr­ir aðgang­inn að auðlind­inni 85,9 millj­arða. Ég veit ekki með ykk­ur en mér finnst þetta væg­ast sagt síðasta sort,“ segir Inga að lokum í pistli sínum.

Tillögur hennar hafi verið felldar. „Stjórn­ar­flokk­arn­ir sam­stiga sem einn maður og sneru öll blinda aug­anu að sín­um minnstu bræðrum og systr­um.“