„Andstaða okkar í Flokki fólksins gegn þessu frumvarpi er þekkt og hún hefur ekkert breyst. Þetta er átakanlegasta þingmál sem ég hef staðið frammi fyrir síðan ég settist á þing. Frumvarpið kom á sínum tíma sem þruma úr heiðskíru lofti.“
Þetta skrifar Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Þar vísar hún til frumvarps um þungunarrof sem verður tekið til lokaatkvæðagreiðslu í dag. „Þar verður að öllu óbreyttu heimilt að eyða ófullburða börnum í móðurkviði fram að 23. viku meðgöngu og það án nokkurra skilyrða, sbr. 1. málsliður 1. mgr. 4. gr. frumvarpsins en þar segir: Heimilt er að rjúfa þungun konu, að hennar beiðni, til loka 22. viku þungunar. Þetta verður mæðradagsgjöf þings til þjóðar,“ segir Inga.
Hún segir umræðu um frumvarpið í þinginu hafa verið í skötulíki. „Meðhöndlun málsins er Halldóru Mogensen, þingmanni Pírata og formanni í velferðarnefnd, sem ber ábyrgð á því innan nefndarinnar, ekki til sóma. Ekkert var rætt um það í kosningabaráttunni haustið 2017 að einhverjir flokkar hygðust leggja þetta mál fram. Hvergi sér þess stað í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Hvaða öfl standa á bak við það að þrýsta frumvarpinu í gegn og það í nafni kvenfrelsis?“
„Tölfræðin sýnir að fimmti hver getnaður hér á landi endar með fóstureyðingu. Framkvæmdar eru rúmlega eitt þúsund fóstureyðingar árlega eða 4 fóstureyðingar hvern virkan dag ársins. Engri konu hefur verið neitað um aðgerðina. Það eru einungis um 4.000 fæðingar hérlendis á ári hverju. Fæðingartíðnin hefur aldrei mælst lægri en nú,“ bætir Inga við.
Hún telur það óásættanlegt að svo margar fóstureyðingar eigi sér stað árlega. „Í jafn þróuðu og vel upplýstu samfélagi og við státum af dagsdaglega er algerlega óásættanlegt að um 20% allra þungana ljúki með því að fóstri sé eytt. Fóstureyðingar fela iðulega í sér harm og þjáningar fyrir alla þá sem hlut eiga að máli. Hvernig sem atkvæðagreiðslan um fóstureyðingafrumvarp ríkisstjórnarinnar fer í dag, þá er víst að við verðum að taka umræðuna og hefja þjóðarátak í fækkunum fóstureyðinga og um leið að lækka þetta skelfilega hlutfall.“
„Ég hvet alla sem geta til að fylgjast með því þegar atkvæðagreiðslan um frumvarpið fer fram. Ég get lofað því að hún mun fara fram að viðhöfðu nafnakalli þar sem hver og einn viðstaddur þingmaður mun þurfa að gefa upp afstöðu sínu í heyranda hljóði frammi fyrir alþjóð, og það verður líka eftir því tekið ef einhver og þá hver kýs að greiða atkvæði með fótunum og láta sig vanta í atkvæðagreiðsluna,“ segir Inga einnig.