Bandaríska fjárfestingarfélagið Indigo Partners og WOW air hafa komist að samkomulagi um að Indigo fjárfesti fyrir allt að 75 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 9,4 milljarða króna, í WOW air.
Þetta kemur fram á vef WOW air. Þar segir að vinna við áreiðanleikakönnun standi enn yfir en í kjölfar hennar muni félögin ganga frá fjárfestingunni eins fljótt og auðið er. Samkomulagið feli í sér að Indigo kaupi hlutabréf í WOW air og þá er fjárfestingafélagið með það til skoðunar að gefa út breytanlegt skuldabréf til flugfélagsins. Samtals nemi fjárfestingin í WOW air 75 milljónum Bandaríkjadala.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/indigo-fjarfestir-fyrir-9-4-milljara-i-wow-air