Gangi kaup Indigo Partners í WOW Air eftir mun bandaríska fjárfestingafélagið eignast 49 prósent hlut í flugfélaginu. Fjárfesting Indigo er í formi láns til tíu ára með breytirétti í hlutafé, hafi fjárfestingafélagið í hyggju að nýta sér þann rétt gæti hlutur Indigo í WOW aukist.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi sem Skúli Mogensen, stofnandi WOW, sendi skuldabréfaeigendum í dag og nálgast má á tilkynningarsíðu flugfélagsins.
Þar kemur jafnframt fram að „nákvæm upphæð fjárfestingarinnar“ muni ráðast af fjárþörf WOW meðan verið er að snúa rekstri flugfélagsins við. Það sé einbeittur vilji Indigo Partners að fjármagna WOW með fullnægjandi hætti meðan á þessu ferli stendur - „eins og þau hafa gert áður í öðrum árangursríkum fjárfestingum þeirra í fluggeiranum,“ áður en vísað er til flugfélaganna Wizz Air, Volaris og Frontier Airlines í þessu samhengi.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2019190108974