Í gær var greint frá því að WOW air hefði hafið formlegar viðræður við fjárfesta um að leggja félaginu til nýtt hlutafé. Á meðal þeirra sem rætt er við nú er Indigo Partners, bandaríska fjárfestingarfélagið sem ákvað fyrir tæpri viku að hætta við að fjárfesta í WOW air. Frá þessu er greint í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins.
WOW air áformar að breyta skuldum þess við skuldabréfaeigendur og aðra lánardrottna í hlutafé. Skuldir þessar nema samanlögðum 120,4 milljónum dollara, jafnvirði um 14,6 milljarða króna. Í kjölfarið er áætlað að gefa út ný forgangshlutabréf fyrir 40 milljónir dollara, sem jafngildir 4,8 milljörðum króna, til þess að fullfjármagna rekstur flugfélagsins.
Ef fjárfestir finnst sem er reiðubúinn að leggja til 40 milljónir dala í nýtt hlutafé mun hann eignast 51 prósent hlut í WOW air og öðlast í leiðinni forgangsrétt að arðgreiðslum og öðrum útgreiðslum félagsins. Á móti munu skuldabréfaeigendur og lánardrottnar félagsins fara með 49 prósent hlut í því.