Orri Vigfússon lést á Landspitalanum í Reykjavík hinn 1. júlí sl. Hann var á 75. aldursári. Orri fæddist á Siglufirði og lauk gráðu í viðskiptafræði í London árið 1964.
Orri skrifaði nokkuð um efnahagsmál og náttúru Íslands og vernd hennar. Hann var stofnandi og formaður Verndarsjóðs villtra laxastofna en Orri helgaði líf sitt vernd og viðkomu Norður-Atlantshafs laxastofnsins.
Orri var þekktur og virtur víða um heim fyrir störf sín að umhverfismálum og náttúruvernd. Eiignkona Orra var Unnur Kristinsdóttir og eiga þau tvö uppkomin börn.
rtá