Ég sé fyrir mér samtal milli forseta Bandaríkjanna og forsætisráðherra Íslands ef Ísland hætti stuðningi við aðgerðir vestrænna lýðræðisríkja gegn hernaðarbrölti Rússa, skrifar hagfræðingurinn og þjóðmálarýnirinn Jón Steinsson á fésbók sína í dag.
Og hann setur þetta leikrit á svið, sem hér segir:
Obama: Bara svo ég sé örugglega ekki að misskilja, þið Íslendingar eruð aðilar að NATO en eruð samt ekki með neinn her.
Sigmundur Davíð: Já.
Obama: Svo þegar ráðist er á ykkur þá sendum við hermenn til að verja ykkur en ef ráðist er á okkur þá sendið þið enga hermenn til þess að hjálpa okkur.
Sigmundur Davíð: Já.
Obama: En hér kemur upp staða þar sem þið getið hjálpað til við að viðhalda friði í Evrópu og virðingu fyrir landamærum sjálfstæðra ríkja, og enginn Íslendingur mun láta lífið, það eina sem þið þurfið að gera er að selja einhverjum öðrum 5% af útflutningi ykkar, en þið ákveðið að það sé of mikið á ykkur lagt að gera það.
Sigmundur Davíð: Já.
Obama: Já, ok. Ég vildi bara vera viss um að ég skildi þetta rétt. Á ensku köllum við þetta að „free ride-a“. Það er illa séð svo ekki sé fastar að orði kveðið.