,,Ímynd sjómannsins er röng\" segir Þröstur Njálsson, sjómaður en hann er á ísfiskaranum Ásbirni RE 50. Þetta kom fram í þættinum Lífsins list á Hringbraut í gærkvöldi. ,,Flestir sem eru með mér á skipi eru edrú. Staðreyndin er sú að sjómenn í dag eru harðduglegir fjölskyldumenn\" sagði Þröstur þegar hann gekk með Sirrý um ljósmyndasýninguna ,,Bræla\" í Sjóminjasafninu úti á Granda.
Þresti líður best í brælu og segist fara út í vondu veðri og taka ljósmyndir af sjómönnum við störf sín. Hann treystir skipsfélögunum eins og fjölskyldu sinni. Þröstur hefur starfað sem sjómaður á Ásbirni RE 50 í nokkur ár og byrjaði að taka ljósmyndir fyrir þremur árum. Hann velur sér myndavél sem má alltaf treysta á og er eins og íslenski sjómaðurinn: ,,Traust og hægt er að stóla á í öllum veðrum\" segir Þröstur Njáls í þættinum sem hægt er að sjá á hringbraut.is.