Ilmur tekur upp hanskann fyrir séra Davíð

Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir hefur bæst í hóp þeirra sem taka upp hanskann fyrir séra Davíð Þór Jónsson vegna nýlegrar gagnrýni gegn fjöldabrottvísunum ríkisstjórnarinnar á hælisleitendum. Eins og frægt er orðið sagði Davíð í pistli á Facebook-síðu sinni að þingmenn Vinstri grænna væru „sek eins og syndin“ og að það væri sérstakur staður í helvíti fyrir „fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur.“

Ummæli Davíðs hafa reynst umdeild og sitt þykir hverjum um hvort viðeigandi sé að prestur hóti stjórnmálamönnum vist í helvíti. „Ég vil nota tækifærið hér og þakka okkar sóknarpresti í Laugarneskirkju fyrir að hrista vel í kerfinu og vekja athygli á málefnum flóttafólks,“ skrifaði Ilmur hins vegar í færslu inni á Facebook-síðu íbúa í Laugarneshverfi. Þá vakti hún athygli á nýlegum pistli Sindra Geirs Óskarssonar, sóknarprests í Glerárkirkju, með eftirfarandi tilvitnun:

„Prestar kirkjunnar hafa ekkert vald yfir því hvað tekur við að þessu lífi loknu – en ef við ætlum að vera trú okkar köllun og okkar boðskap sem þjónar kristinnar kirkju þá megum við og eigum við að bregðast við þegar valdhafar í íslensku samfélagi dæma jaðarsett fólk til raunverulegrar helvítisvistar. Ef það kallar á sterk orð til að vekja fólk til umhugsunar – þá er það gott og blessað.“