Illviðri í nótt og á morgun​

Bálviðri gengur nú yfir landið og þótt heldur dragi úr vindstyrk með kvöldinu er búist við öðru áhlaupi í kvöld og á morgun. Enn ein lægðin er svo væntanleg yfir landið á föstudag með stormi og úrkomu. Óveðrið í dag hefur geysað á Suðurlandi og vestur um land og hefur hvassviðrið náð yfir Vestfirði með bálbyl og snjóflóðahættu í byggð. Nokkur svæði á Patreksfirði hafa verið rýmd sakir þessa. Vart er ferðaveður á mörgum helstu þjóðleiðum, svo sem um Bröttubrekku og Holtavörðuheiði, sem og á sunnanverðum Vestfjörðum. Þá er vegurinn um Hafnarfjall, Sandskeið, Hellisheiði og Þrengsli lokaður, en opið er um Suðurstrandarveg, þar sem þó er óveður. Fólk er eindregið hvatt til að hafa samband við Vegagerðina í síma 1777, eða skoða síðuna vegagerdin.is áður en lagt er af stað milli bæja.