Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra kveðst vera þeirrar skoðunar að Ríkisútvarpið eigi að vera komið af auglýsingamarkaði innan ákveðins tíma, en þá þurfi um leið að nást sátt um aðra fjármögnun stofnunarinnar og tryggja að hún fái sinnt því hlutverki sem landsmenn geri kröfu um að hún rækti.
Þetta kemur fram í grein ráðherrans í Morgunblaðinu í dag þar sem hann fylgir eftir fyrr grein sinni í sama blaði fyrir viku, en þar boðaði hann frekari skrif sín um framtíðarhlutverk almannafjölmiðils á Íslandi.
Illugi hefur áður lýst því yfir, þvert á samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins að hann vilji sjá rekstrur RÚV í blóma á næstu árum og áratugum og leggst til að mynda gegn lækkun útvarpsgjalds eins og flokksbróðir hans og varformaður fjárlaganefndar, Guðlaugur Þór Þórðarson hefur boðað, en einhvers konar sátt virðist ríkja um samdrátt ríkistekna RÚV millum ríkisstjórnarflokkanna.
Illugi vill hins vegar sjá vissar breytingar í rekstri RÚV, svo sem að stærri hlutdeild tekna stofnunarinnar verði varið í innlenda þáttagerð en áður til að efla menningarhlutverk þess og þátt miðilsins í lýðræðislegri umræðu: \"Þessi markmið eru og eiga að vera grunngildi íslensks ríkisútvarps,\" skrifar Illugi í Morgunblaðið í dag og bætir við: \"Við megum ekki gleyma þeim í afþreyingarkapphlaupi við erlenda risa sem við getum aldrei lagt að velli.\"
Af þessum orðum ráðherrans má ráða að hann vilji minni erlenda froðu á dagskrá ríkismiðilsins og engar auglýsingar þegar færi gefst og fjárhagur stofnunarinnar hefur verið tryggður.