Illugi vill ekki sjá fréttablaðið framar

Margir fyrrverandi og núverandi blaðamenn hafa fordæmt opinberlega leiðaraskrif Þorbjörns Þórðarsonar, fréttamanns 365, í Fréttablaðinu í dag.

Í leiðaranum ritar Þorbjörn m.a. um kosti þess að hafa ríka stjórnmálamenn. Hann bendir á vegna aflandsmálanna að hinir fjársterkir stjórnmálamenn séu ekki fjárhagslega háðir öðrum. Þykir mörgum sem hanskinn sé tekinn ansi hressilega upp fyrir Sigmund Davíð þannig að sæmi ekki blaðamanni sem beri að gæta að aðhalds- og eftirlitshlutverki fjölmiðla sem oft eru kallaðir Fjórða valdið. Illugi Jökulsson tínir upp nokkrar setningar úr leiðara Þorbjörns. \"Hæfileikar og fjárhagslegt sjálfstæði haldast gjarnan í hendur.“ Og: „Umræða síðustu daga ... fælir hæft fólk frá stjórnmálaþátttöku og almenningur situr þá uppi með framboð eintómra kverúlanta.“ Illugi segir á eigin facebook-síðu þar sem hann deilir leiðaranum: \"Ég er eiginlega algjörlega orðlaus yfir þessari setningu. Ég nenni alla vega ekki að lesa blað þar sem leiðaraskrifin eru á þessa lund, og mun biðjast undan því að fá Fréttablaðið framar.\"

 Guðmundur Andri Thorsson, sem ritar vikulegan pistil í Fréttablaðið, segir í athugasemd við skrif Illuga og vitnar til þessarar málsgreinar leiðarahöfundar: „Siðferðisbrestur stjórnmálamanna sem eiga aflands­félög og eignir í erlendum gjaldeyri felst ekki í eignarhaldinu eða auðlegðinni. Siðferðisbresturinn felst í skilaboðum innanlands um hvað sé almenningi fyrir bestu. Enda er þetta fólk allt krónusinnar í orði en evrusinnar á borði.“ Hann spyr: \"Er ekki nóg að Facebook með sínum algórytmum sjái okkur fyrir sjónarmiðum sem við höfðum fyrir? Er ekki ágætt að lesa eitthvað sem maður er ósammála?\" Illugi svarar: \"Það þroskar mig nú ekkert sérstaklega í lífinu eða hjálpar mér að skilja veröldina að lesa svona auðmannadekur.\"
 
Auðmannadekrið eins og það er kallað hefur orðið fleirum tilefni til umræðu t.d. á Pírataspjallinu þar sem Atli Thor Fanndal blaðamaður skrifar vegna leiðara Þorbjarnar: \"Það er ótrúleg stéttarfyrirlitning í íslenskum fjölmiðlum. Það er það sem fær fólk til að trúa því svo innilega að ríkir séu heiðarlegri, hafi að sjálfsögðu áunnið sér auðinn og að öfund sé rót allrar gagnrýni.\"
 
Þorbjörn Þórðarson sem mörgum þykir frábær fréttamaður var einnig gagnrýndur þegar hann tók umdeilt viðtal við nokkra auðuga bankamenn sem afplána nú fangelsisrefsingu vegna glæpa þeirra fyrir hrun á Kvíabryggju. Kristín Þorsteinsdóttir útgefandi Fréttablaðsins sem skrifar flesta leiðara í helgarblað Fréttablaðsins vakti fyrir skömmu í leiðara Fréttablaðsins athygli fyrir hennar nálgun á Tortólamáli Sigmundar Davíðs. Hún kallaði það \"pólitíska lágkúru\" þegar þingmenn minnihlutans vildu fá allt upp á borðið í máli forsætisráðherrahjónanna.
Þá hefur í umræðu um leiðaraskrifin og ritstjórnarstefnu 365 í dag verið spurt spurninga um tengsl Jóns Ásgeirs við Tortóla og aflandsfélög en eiginkona hans er skráð fyrir megninu af hlutafé 365.