Illugi vill breytingar á rúv

\"Allt er í heiminum hverfult - og breytingum háð. Ríkisútvarpið er þar ekki undanskilið og það mun og þarf að breytast, líkt og aðrir fjölmiðlar, ef við ætlum okkur að ná markmiðunum með rekstri þess.\"

Þetta skrifar Illugi Gunnarsson, menntaráðherra í grein um RÚV í Morgunblaðinu í dag í tilefni af umdeildri skýrslu Eyþórsnefndarinnar um rekstur stofnunarinnar frá því hún var gerð að opinberu hlutafélagi árið 2007. Hann bendir á í grein sinni að Ríkisútvarpið sé ekki markmið í sjálfu sér, heldur leið að markmiðum \"sem ég tel að nokkuð góð sátt ríki um hér á landi.\"

Illugi hefur á öðrum vettvangi lýst því yfir að hann sé ósammála nýjustu samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins um að ríkið hætti fjölmiðlarekstri, en í grein sinni í dag kallar hann eftir breytingum á rekstri RÚV. \"Ég tel hins vegar að Ríkisútvarpið hafi mikilvægu hlutverki að gegna í nútímasamfélagi og ég tel nauðsynlegt að umræða fari fram um framtíðarfyrirkomulag þess, til að það geti fullnægt þessu hlutverki sínu svo vel sé.\"

Í greininni kveðst hann ætla á næstu dögum að gera nánari grein fyrir því hvernig hann telji að Ríkisútvarpið geti sem best náð markmiðum sínum og hvernig það geti gegnt hlutverki sínu á sem farsælastan hátt í samfélaginu.