Jón Ólafsson heimspekingur og prófessor við Háskólann á Bifröst segir Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra ekki getað komið að málum Orku Energy í ráðherratíð sinni eftir að upplýst var um samskipti hans við fyrirtækið. Náin tengsl hans við fyrirtækið og forráðamenn þess standi því fyrir þrifum.
Ráðherrann seldi stjórnarformanni fyrirtækisins íbúð sína Ránargötu nýverið og leigir hana nú af honum fyrir 230 þúsund krónur á mánuði, en hefur einnig orðið tvísaga um þátt fimm forsvarsmanna Orku Energy í opinberri heimsókn íslenskra stjórnvalda til Kína á dögunum. Þar sagði ráðherra að fund Orku Energy með kínverskum viðskiptamönnum hefði borið að fyrir tilviljun, en gögn sem Hringbraut birti í gær sína svo ekki verður um villst að fulltrúar Orku Energy voru allan tímann formlegir þátttakendur í opinberu sendinefndinni til Kína - og fengu þar aðgang, í krafti opinberrar heimsóknar, að kínverskum ráðamönnum sem öllu getur skipt fyrir erlend fyrirtæki sem ætla að koma ár sinni fyrir borð í kommúnistaríkinu.
Illugi hefur starfað sem ráðgjafi fyrir Orku Energy, meðal annars þegar hann gerði hlé á þingstörfum sínum í upphafi síðasta kjörtímabils vegna rannsóknar á starfsemi Sjóðs 9 í Glitni sem Illugi var í forsvari fyrir áður en bankahrunið reið yfir. Óvíst er hvaða greiðslur hann fékk fyrir vinnu sína í þágu Orku Energy, jafnt fyrr á tíð og síðar meir, en hann hefur neitað að gefa greiðslurnar upp og hvernig hann hafi gert skil á þeim.