Illugi öskuillur: „þau eru öll meðsek í svívirðunni! ógeðsleg lágkúra er þetta!“

Heimildir Fréttablaðsins herma að greinargerð Andra Árnasonar, setts ríkislögmanns í máli Guðjóns Skarphéðinssonar, fór til yfirlestrar í þremur ráðuneytum, hjá Katrínu Jakobsdóttur í forsætisráðuneytinu, Bjarna Benediktssyni í fjármálaráðuneytinu og til Áslaugar Örnu í dómsmálaráðuneytinu, áður en hún var lögð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur síðastliðinn fimmtudag. Voru ráðherrarnir upplýstir um að hún væri í húsi.

Illugi Jökulsson, rithöfundur segir um tíðindi Fréttablaðsins:

„Nú upplýsir Fréttablaðið að greinargerðin hafi legið frammi í ráðuneytum Katrínar Jakobsdóttur, Bjarna Benediktssonar og Áslaugar Örnu í hálfan mánuð, og þau hafa því án nokkurs vafa kynnt sér hana“.  Illugi segir í ljósi þessara fregna: „Það dugar því ekki að þykjast ekkert hafa vitað hvað Andri (ríkislögmaður) var að bralla.“

Illugi bætir við:

„Þau eru öll meðsek í svívirðunni! Í reynd leggja þau blessun sína yfir og taka þátt í að níðast á sakborningum sem reyna að ná rétti sínum eftir 40 ár! Ógeðsleg lágkúra er þetta!“