Illugi: „svindlararnir í procar stálu peningum“

„Svindlararnir í Procar stálu peningum af þeim sem keyptu af þeim bíla með fölsuðum ökumælum. Já, það heitir að stela.“

Þetta segir Illugi Jökulsson um bílaleiguna Procar, en hún er ásökuð um að hafa breytt mælum sem mæla heildarakstur í bílum sem fyrirtækið seldi.

Í samtali við RÚV segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamálaráðherra, að það sé mjög íþyngjandi að svipta bílaleigunni starfsleyfi en segir að þessi hegðun sé tvímælalaust lögbrot.

Fyrirtækið er í dag með fulla starfsemi í gangi og er ennþá að leigja út bílaleigubíla til viðskiptavina. Furða margir sig á því hvernig það getur staðist að fyrirtækinu sé leyft að starfa eins og ekkert hafi gerst.

„En þeir eru ekki sviptir rekstrarleyfi af því það væri svo „íþyngjandi“ fyrir þá. Með leyfi að spyrja, mundi innbrotsþjófur geta beðist undan því að vera handtekinn á innbrotsstað af því það væri svo íþyngjandi fyrir hann? Eða hafa svindlararnir í Procar einhver þau sambönd sem ráða því að annað gildir um þá?“ veltir Illugi fyrir sér.

Bílaleigan er undir rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Rúmir tveir mánuðir eru síðan fjallað var um málið í ítarlegri umfjöllun um svindl fyrirtækisins í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV. Samkvæmt lögreglunni er rannsóknin mjög umfangsmikil og er ekki vitað hvenær henni verður lokið. Lögreglan hefur ekki enn handtekið neinn og á enn eftir að ræða við nokkur vitni í málinu.