Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir ekkert benda til að hann muni hætta sem ráðherra um áramót. Þetta kom fram í fréttaskýringarþættinum Kvikunni sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld.
Þáttinn má nálgast hér á hringbraut.is, en þar spyr Björn Þorláksson þáttastjórnandi ráðherra hvort hann muni segja af sér á næstu dögum eða hætta um áramót.
Í þættinum segir Illugi af ef dagskrá Kínaferðarinnar sé skoðuð, þar sem vini hans og fjárhagslegum velgjörðarmanni var boðið út sem stjórnarformanni Orku Energy, öðru af tveimur fyrirtækjum í ferðinni, sé augljóst að hann hafi ekki óhreint mjöl í pokahorninu.
Í þættinum verður einnig rætt umboð mennta- og menningarmálaráðherra til að umbylta menntakerfinu en leitun er að eins róttækum breytingum á menntakerfi og Illugi Gunnarsson stendur yfir. Hann telur þær breytingar afar mikilvægar og segir Ísland engan veginn standast samanburð við flest nágrannaríkjanna.
Þá verður svört skýrsla um Rúv mjög til umræðu.