Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra segist hafa kvittun sem sýni fram á að hann hafi greitt veiðileyfi í Vatnsárdal þegar ráðherrann veiddi lax með forsvarsmönnum Orku Energy. Þá segir hann að ferð til Kína þar sem hann fundaði með Orku Energy hafi verið í boði kínverskra stjórnvalda.
Þetta kom fram á Alþingi í dag þegar Ásta Helgadóttir þingmaður fékk hluta þeirra svara sem þingmaðurinn vildi fá frá Illuga. Fjöldi blaðamanna og þar á meðal hér á Hringbraut hefur falast eftir svörum frá Illuga vegna meintra tengsla hans við Orku Energy sem tengjast fjárhagslegu sjálfstæði ráðherrans. Hringbraut skrifaði fréttaskýringu um málið á dögunum en Rúv sagði fyrst frá svörum Illga á þingi í morgun.
Boðað hefur verið að Illugi muni tjá sig ítarlega um málið í viðtali í Fréttablaðinu á morgun en mörgum spurningum er ósvarað sem varða m.a. húsnæðismál ráðherrans.