Illugi sagður reyna að eyðileggja rúv

Óðinn Jónsson, fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins, sem stýrir nú morgunþætti hjá stofnuninni, gefur í skyn að fyrirætlan Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra sé að eyðileggja almannaútvarpið.

Í færslu á facebook skrifar Óðinn þung orð og tengir við grein Illuga í  Mogganum um að breyta verði Rúv:
„Ein leiðin til að eyðileggja Ríkisútvarpið er að draga endalaust í efa grundvöll tilvistar þess, skipa hvern starfshópinn af öðrum og panta hverja skýrsluna af annarri - til að komast að niðurstöðu sem gengur þvert á vilja meirihluta þjóðarinnar, sem vill sitt Ríkisútvarp,“ skrifar fréttastjórinn fyrrverandi.

„Svona langdregin og leiðinleg umræða smækkar Ríkisútvarpið. Ég vitna í gamlan vopnabróður, sem sagði eitthvað á þessa leið: „Menntamálaráðherra vill að RÚV sé kammersveit en ekki sinfóníuhljómsveit\". Ef það gengur eftir, er draumurinn um þjóðarútvarpið úti,“ bætir Óðiinn við.

 Ljóst er að Óðinn er ekki eini starfsmaður Rúv sem óttast breytingar. Hringbraut ræddi við kollega Óðins á dögunum sem sagði svarta skýrslu um Rúv pantaða niðurstöður og væntanlega undanfara mikilla breytinga.

Hafa sumir starfsmenn Rúv sem Hringbraut hefur rætt við rifjað upp blóðugu mánaðamótin fyrir tveimur árum þegar Páll Magnússon útvarpsstjóri neyddist til að segja fjölda fólks upp og fauk svo sjálfur.

Margir óttast uppsagnir og viðamikla vendingu en staða Magnúsar Geirs núverandi útvarpsstjóra er sögð trygg, enda geri hann vilja ráðherra og hafi verið skipaður til þess.

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sat fyrir svörum í Kvikunni á Hringbraut fyrir skemmstu og lýsti hann þar nauðsyn þess að Rúv hætti að keppa við einkaaðila í því sem væri samkeppnishæft. Rásar eitt gildi Rúv mætti ekki skerða auk þess sem Illugi gerir að því er virðist áfram ráð fyrir öflugri fréttastofu. Illugi vill ekki að Rúv keppi við einkaaðila um sýningar á vinsælum erlendum þáttaröðum og hann vill Rúv burt af auglýsingamarkaði. Gangi þessar breytingar allar eftir hlýtur það að þýða að margir tugir fólks missi vinnu sína.

Fréttaskýring: BÞ