Illugi: ríkið fann upp atómbombuna!

Til hugmyndafræðilegra skoðanaskipta um einkageira og ríkið kom milli Katrínar Jakobsdóttur, þingmanns VG og Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra á fyrsta degi þingsins í dag eftir langt jólafrí.

Ummæli ráðherra hvort menntakerfið hér á landi væri lélegt urðu kveikja óundirbúinnar fyrirspurnar Katrínar en þar vísaði hún til orða Illuga sem féllu á dögunum við opnun nýs lestrarforrits hjá fyrirtæki í einkaeigu. Þá sagði Illugi samkvæmt Viðskiptablaðinu í ræðu að skólakerfið hefði ekki leyst sinn vanda, opinbera skólakerfið væri lélegt í að koma með nýjungar og nýsköpun í skólastarfi. Sjálf sagðist Katrín telja ríkisrekið skólastarf miðstöð nýjunga og þróunar. Hún vildi vita hvaða gögn  Illugi hefði um fyrrgreinda staðhæfingu ef rétt væri haft eftir. Gott starf skilaði sér iðulega í samvinnu hins opinbera og einkageirans í þróunar- og tæknistarfi. Snjallsímar væru dæmi um það. Skólakerfið væri fullt af nýjungum við kennslu, myndlæsi og náttúruskilning. Katrín sagðist vilja vita hvað ráðherra ætti við með „lélegu skólakerfi“ hvað nýjungar varðaði. Teldi Illugi virkilega að rekstraform réði hvort fólk væri hugmyndaríkt eða skapandi í starfi?

Illugi vitnaði í PISA-prófin sem mældu að læsi barna hrakaði mjög hér á landi, 30% drengja gætu ekki lesið sér til gagns í 10. bekk og 12% stúlkna stæðu í sömu sporum.  Illugi spurði Katrínu á móti hvort hún teldi að við gætum sagt við foreldra 30% drengja við útskrift úr grunnskóla að við værum sátt við þá niðurstöðu að þeir gætu ekki lesið sér til gagns. Illugi neitaði ekki að Viðskiptablaðið hefði haft rétt eftir sér þegar hann flutti töluna forðum sem skapaði ólgu hjá mörgum kennurum og fræðimönnum.

Þá benti Illugi á að hið opinbera hefði líka fundið upp kjarnorkusprengjuna þannig að hæpið væri að hampa einu umfram annað. Það væri þó misskilningur að túlka ummæli hans sem svo að hann hefði vegið að fagmennsku einstaklinga. Eigi að síður yrði að bæta læsi. Spyrja mætti hvort verið væri að gera nóg í kennsluuppgötvunum og þróunarstarfi skóla svo að hægt sé að snúa afleitum árangri við.