Illugi: össur sögulega stefnubrotinn

Illugi Gunnarsson hefur svarað Össuri Skarphéðinssyni en fyrr í dag sagði Össur á þingi að Illuga væri ekki sætt ef hann næði ekki að koma Rúv-málinu fram í eigin ríkisstjórn.

Illugi segir í fésbókarfærslu að athygli veki að Ríkisútvarpið þyki slíkt prinsipmál að hann hljóti að segja af sér ef hann nái ekki að koma í veg fyrir lækkun á fjárframlögum ríkisins til stofnunarinnar.

„Þetta er mjög áhugavert. Helsta stefnumál Samfylkingarinnar, og reyndar það eina sem einhverju nemur, snýr að aðild Íslands að ESB. Á síðasta kjörtímabili var sótt um aðild að ESB og Össur var utanríkisráðherra í þeirri ríkisstjórn. Það hefur komið skýrt fram og er óumdeilt að ráðherrar í VG þvældust mjög fyrir ráðherranum í samningaviðræðunum og kvað svo rammt að mótþróanum að utanríkisráðherrann þurfti að kyngja því að setja aðildarumsóknina á ís þegar draga tók að kosningum. VG stöðvaði þetta eina og lang mikilvægasta mál Samfylkingarinnar með stæl og hafði lítið fyrir því – reyndar með pínu kvikindsilegu glotti á vör.

Einhverjir hefðu nú sagt að utanríkisráðherra myndi aldrei sitja undir slíku, hann hlyti samvisku sinnar vegna að hóta afsögn og stilla þannig samstarfsflokki sínum upp við vegg. Um var jú að ræða sjálfan tilvistargrundvöll Samfylkingarinnar, algert prinsipmál fyrir flokkinn hans. En nei, hann hótaði afsögn út af deilu um fjármagn til þróunarmála.

Össur getur nú varla ætlast til þess að orð hans hafi hér vægi. Leitun er af ráðherra í stjórnmálasögu landsins sem hefur látið yfir sig ganga jafn mikið stefnubrot eins og hann gerði sem utanríkisráðherra,“ skrifar Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.