„Hvaða fábjánar stóðu fyrir þessu? Var ENGINN í hópi samverkamanna þessarar útlensku auglýsingastofu sem vakti athygli hennar á því hve ömurleg þessi hugmynd er?“
Mjög skiptar skoðanir eru um nýjastu markaðsherferð Íslandsstofu og greinilegt að rithöfundurinn Illugi Jökulsson er vægast sagt lítt hrifinn af framtakinu.
Sjá nánar: Bjóða útlendingum að öskra um allt land
Greint var frá því í gær að taugatrekktum útlendingum gæfist nú tækifæri á að losa um streitu með því að láta öskur sín óma í íslenskri náttúru.
Verður fólki boðið að taka upp öskur sitt á vefsíðu sem verði í kjölfarið spilað í einum af sjö hátölurum staðsettum við margar helstu náttúruperlur landsins.
Hluti af 1,5 milljarða króna markaðsátaki
„Stundum verður maður vitni að auglýsingum og auglýsingaherferðum sem eru svo slæmar, svo firrtar og svo heimskulegar að maður furðar sig helst á því að í öllu ferlinu hafi enginn áttað sig á því og sagt: „Bíddu, þarf ekki að hugsa þetta eitthvað betur?“ - Ég held að sú spurning hafi aldrei verið ofar í huga en í þetta sinn,“ skrifar Illugi í færslu á Facebook-síðu sinni.
Sjá nánar: Ketchum ekki sakað um glæp ólíkt M&C Saatchi
Herferðin er hluti af 1,5 milljarða króna markaðsátaki sem er ætlað að draga ferðamenn til landsins. Breska auglýsingastofan M&C Saatchi og hin íslenska Peel voru talin hlutskörpust í útboði Ríkiskaupa og hafa yfirumsjón með verkefninu.
„Voru ENGIN íslensk stjórnvöld sem báðu um að fá að vita fyrir hvað ætti að borga allar milljónirnar? En í guðanna bænum, pakkiði þessari drasl herferð niður í skúffu og látið ekki nokkurn mann sjá þetta - né heyra.“
Fá upptöku af öskrinu heyrast í íslenskri náttúru
Hátalararnir eru staðsettir í Viðey í Reykjavík, Festarfjall við Grindavík, í nágrenni Skógafoss, skammt utan við Djúpavog, við rætur Snæfellsjökuls, við Kálfshamarsvík og við Rauðasand á Vestfjörðum. Notendur fá svo að lokum myndbandsupptöku af því þegar öskrið þeirra „glymur“ á Íslandi.