Illugi mærir Gretu Thunberg – Þá kom Hannes: „Salem, 1692”

Rithöfundurinn og samfélagsrýnirinn Illugi Jökulsson fer fögrum orðum um loftslagsbaráttukonuna Gretu Thunberg, hann segir á Facebook:

„Þessi skörungur er greind með Asperger-syndróm, þráhyggjuröskun og "selective mutism" sem þýðir að hún getur nálega misst málið við ákveðnar stressandi aðstæður. Hún er líka séní og segir það sem enginn annar þorir að segja á alþjóðlegum ráðstefnum. Mikið er þetta hressandi.“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, varpaði svo sprengju inn á Facebookvegg Illuga með því að segja einfaldlega: „Salem, 1692.“

Vísar hann þar til nornafársins í bænum Salem í Massachusetts, sem nú er í Bandaríkjunum. Þar voru meira en 200 manns sakaðir um galdra, fjórtán konur og fimm karlar voru dæmd til dauða. Um er að ræða svartan blett á réttarsögu Vesturlanda og er málið reglulega rifjað upp þegar stór hópur varpar fram ásökunum sem eiga ekki við nein rök að styðjast.

Illugi svaraði einfaldlega: „Vertu ekki með þessa lágkúru Hannes. Þetta er svo farout að ég nenni ekki að svara þessu frekar, en vertu ekki með þessa lágkúru.“

Hannes uppskar svo mikla gagnrýni. Brjánn nokkur segir: „Vá! hvað þetta var bilað komment.“ Og Sindri nokkur segir: „Þetta er ekki bara lágkúra. Þetta er viðbjóður.“