Illugi heyrði áhugaverð samskipti í heita pottinum: „Svipur karlsins umturnaðist“

Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson sagði frá skemmtilegu spjalli sem hann heyrði í sundi í dag í færslu sem birtist á Facebook síðu hans.

Eflaust hefur Illugi verið í heita pottinum í Laugardalslauginni, en samtalið sem hann greinir frá varðar stóra stúku við sundlaugina, sem er vissulega til staðar í Laugardalslaug.

Þau sem spjalla í örsögu Illuga eru kynnt sem vinaleg hjón: karl og kona. Karlinn virðist halda að hátt í einn fimmti af íslensku þjóðinni gæti komið sér fyrir í stúkunni. Konan var ekki alveg viss um það, en gaf þó eftir á endanum.

Frásögn Illuga er eftirfarandi:

„Í heita pottinum rétt áðan voru vinaleg hjón á mínum aldri að dæsa góðlátlega yfir hinu furðulega mannvirki, áhorfendastæðunum miklu.

„Að hugsa sér,“ sagði karlinn brosandi, „að einhver hafi látið sér detta í hug að einhvern tíma kæmu 65.000 manns að horfa á sundmót hér á landi.“

„Nja,“ sagði konan, einnig brosmild, „það rúmast nú ekki 65.000 manns þarna.“

Svipur karlsins umturnaðist, varð harðneskjulegur á sekúndubroti, brúnirnar sigu og rómurinn varð ískaldur þegar hann sagði:

„Jú, þarna komast vel fyrir 65.000, það sér það hver maður.“

Algjört fát kom augnablik á konuna, svo róaðist hún, kunni á þetta.

„Já,“ sagði hún, „svei mér þá, 65.000, ég sé það núna.“

Karlinn var orðinn vingjarnlegur á ný.

„Já, alveg merkilegt,“ sagði hann.“