Illugi gefur ekki upp laun sín hjá orku

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra gefur ekki upp hvað hann fékk í greiðslur sem ráðgjafi hjá einkafyrirtækinu Orku Energy á meðan hann var í leyfi frá þingstörfum í upphafi kjörtímabilsins fyrir sex árum. Þá afréð hann að stíga til hliðar á meðan opinber skoðun fór fram á stjórnun Sjóðs 9 í föllnum Íslandsbanka sem Illugi leiddi á sínum tíma.


Ráðherrann hefur legið undir ámæli síðustu vikur fyrir að hafa boðið fulltrúum Orku Energy með sér í opinbera heimsókn til Kína, en hann hefur viðurkennt að hafa haft frumkvæði að því að bjóða þeim með sér í ferðina. Opinberar stofnanir á borð við Útlfutningsráð vissu ekki af boðinu.


Almælt er að opinberar heimsóknir til Kína geta opnað fyrirtækjum margvísleg tækifæri í landinu, en stjórnarfarið í einræðisríkinu er með þeim hætti að fáir komast þar að nema með fulltingi málsmetandi ráðamanna. Þykir boð Illuga hafa verið sem því nemur mjög rausnarlegt.


Vefmiðillinn stundin.is hefur freistað þess á síðustu dögum að fá úr því skorið hvaða þóknun Illugi fékk hjá fyrirtækinu á því tæpa ári sem hann vann hjá því sem ráðgjafi á meðan hann var í leyfi frá þingstörfum. Illugi hefur ekki svarað spurningum vefjarins.