Illugi gáttaður en reiður: „ég trúi þessu ekki. ég trúi þessu bara alls ekki.“

Fyrirtaka var í máli Guðjóns Skarphéðinssonar gegn íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þetta kemur fram á Vísi. Þar segir einnig að kröfur setts ríkislögmanns séu óbreyttar. Þar kemur fram að ríkið krefst sýknu af bótakröfum Guðjóns á þeim sama grundvelli að hann beri sjálfur ábyrgð á því að grunur hafi beinst að honum vegna hvarfs Geirfinns.

Illugi Jökulsson rithöfundur er gáttaður á að engar breytingar séu gerðast. Hann segir:

„Ég trúi þessu ekki. Ég bara trúi þessu ekki. Katrín Jakobsdóttir heldur fast við að krefjast sýknu í bótakröfu sakbornings í Geirfinnsmáli af því hann hafi sjálfur átt sök á fangavist sinni.

Ég trúi þessu bara alls ekki.“

Þá segir Illugi einnig:

„Sérlegur lögmaður forsætisráðherra gefur til kynna að sýknukrafa ríkisins verði óbreytt, nema Alþingi samþykki frumvarp Katrínar Jakobsdóttur um bætur til sakborninganna í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Hvað er nú þetta?“

Þá spyr Illugi hvort Katrín hafi ekkert lært af hörðum viðbrögðum á dögunum, en margir voru afar ósáttir við Katrínu vegna málsins.

„Fyrir nú utan að einstaklingar, sem þegar eru marghrjáðir í málinu, eru greinilega leiksoppar forsætisráðherra, þá virðist þetta fela í sér einskonar hótun í garð Alþingis. Ég bara næ þessu ekki. Lærði Katrín Jakobsdóttir EKKERT af viðbrögðunum um daginn?“