Illugi einmana á jólanótt

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra upplýsir á Twitter að Logi Bergmann hafi boðið honum að koma í skemmtiþátt sinn nú í vikunni. Og að þar muni Illugi, sem stundum fer fingrum um píanó, spila lagið Einmana á jólanótt, væntanlega í beinni.

Lætur Illugi glaðhlakkaleg ummæli fylgja nótum að laginu sem hann birtir á Twitter.

„Note to self: Læra að segja nei.“

Við þessu bregst  sjónvarpsstjarnan Gísli Marteinn en hann er með þátt á svipuðum tíma og Logi Bergmann. Þeir tveir berjast um athyglina, annar fyrir 365, hinn fyrir Ríkisútvarpið.

„Skemmtilegt! Bað Logi Bergmann þig að spila eitthvað sem lýsti vel stöðuþinni innan ríkisstjórnarinnar í rúv málinu?“ Spyr Gísli Illuga á Twitter og lætur broskall fylgja.

Með því vísar hann til þess að svo virðist Illugi verði undir í eigin ríkisstjórn, að honum takist ekki að leggja fram frumvarp sem myndi tryggja Rúv meiri tekjur en ella í gegnum útvarpsgjald.

Hvort það mun hafa áhrif á flutning Illuga á Einmana á jólanótt er líka allt önnur saga eða hvort hann yfirhöfuð upplifir einmanaleika þessa dagana vegna þeirra mótvinda sem blása.