Málefni Illuga Gunnarssonar voru til umræðu í Stóru málunum, fréttaskýringarþætti Lóu Aldísardóttur á Stöð 2 í gærkvöld. Henry Alexander Henryson, doktor í heimspeki og starfsmaður Siðferðisstofnunar, var spurður í lok þáttarins hvort Illugi ætti að segja af sér. Játaði hann þeirri spurningu og taldi framtíð Illuga og þjóðar betur borgið með afsögn.
Siðfræðidoktorinn sagði að þótt ekki væri hægt að staðhæfa að um lögbrot eða hreint brot á siðareglum væri að ræða væri kominn upp ýmis vafi í málinu sem leiddi til þess að betra væri fyrir Illuga að segja af sér. Ekki var annað á honum að skilja en að Illugi gæti eigi að síður gegnt þingmennsku. Fram kom hjá fleiri viðmælendum að ráðherra yrði að vera fjárhagslega sjálfstæður og hafa sterkan trúverðugleika en þrjú atriði voru tilgreind í þættinum sem orkuðu tvímælis frá því að málið kom upp. Eitt þeirra var að hefðbundnir fulltrúar úr hópi almennings hefðu vísast ekki getað fengið þá fjárhagslegu fyrirgreiðslu sem Illugi nýtti sér þegar hann seldi eigið hús til félags sem hann átti einn sjálfur áður en stjórnarformaður Orku Energy leysti hann úr snörunni. Síðan hafa vaknað spurningar um greiða og meint fjármálalegt hæði ráðherra við þann sem hefur fjármálalegt líf ráðherrans í hendi sér.
Þá var einnig rætt hvernig Illugi hefði skotið sér undan því að svara þeim fjölmiðli beint sem hefði séð um helstu rannsóknarvinnuna, Stundina, en veldi sér fjölmiðla til að tjá sig í og viki sér gjarnan undan kjarna málsins með skýringum og þeim gögnum sem hann veldi að flagga.
Þáttinn má sjá hér.