Illugi birtir skattframtal sitt

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra birti á Facebook síðu sinni í gærkvöld afrit af skattskýrslum hans og konu hans fyrir árin 2012 og 2013. Hann kveðst gera það vegna fréttar Stundarinnar í dag.
 

Í frétt Stundarinnar er haft eftir ónafngreindum heimildum að ráðgjafafyrirtæki Illuga, OG Capital, hafi fengið 1,2 milljónir frá Orku Energy, í árslok 2012, meira en ári eftir að hann tók aftur sæti á þingi. 
Af skattaskýrslunni sést að Illugi fær launagreiðslu frá Orku Energy upp á rúmar 5,6 milljónir króna árið 2012. Hann bendir á að engar launagreiðslur, arðgreiðslur eða aðrar greiðslur séu til hans eða konu hans frá fyrirtækinu OG Capital á árinu 2012 eða á árinu 2013.

Fjárhagsmál Illuga og tengls hans við Orku Energy hafa verið til umræðu frá því í vor, þegar í ljós kom að hann hefði selt stjórnarformanni Orku Energy íbúð sína vegna fjárhagserfiðleika. Hann leigir nú sömu íbúð. Illugi hefur verið gagnrýndur fyrir að svara ekki spurningum fjölmiðla, einkum spurningum Stundarinnar, mánuðum saman um tengsl sín við fyrirtækið.

Eins og fram hefur komið var Illugi á launaskrá hjá fyrirtækinu á meðan hann var utan þings og fór síðar sem ráðherra til Kína með fulltrúum fyrirtækisins. Hann hefur áður birt launaseðil frá 2012 fyrir ráðgjafastörf fyrir Orku Energy árið 2011 upp á 5,6 milljónir króna og birtir nú skattframtal þeirra hjóna.