Illugi: ætla ekki að segja af mér

\"Það er ekkert fararsnið á mér. Meðan ég hef enn gaman af stjórnmálum þá ætla ég mér að vera í þeim. Daginn sem mér fer að finnast þetta leiðinlegt eða einhver byrði þá held ég að ég myndi skjótt skipta um starfsvettvang.\"

Á þennan veg hefst viðtal við Illuga Gunnarsson, menntamálaráðherra í Fréttablaðinu í dag þar sem hann svarar fyrir þær ávirðingar sem á hann hafa verið bornar í fjölmiðlum á undanliðnum dögum, vikum og raunar mánuðum. Óhætt er að taka svo djúpt í árinni að öll spjót hafi staðið á Illuga frá því uppvíst varð um tengsl hans við fyrirtækið Orku Energy, en hann leigir íbúð af stjórnarformanni þess á sama tíma og hann bauð forkólfum þess sérstaklega með sér í viðskiptaferð til Kína á vegum ráðuneytisins.

Meðal þeirra sem krafist hafa afsagnar Illuga á síðustu dögum vegna pólitískrar spillingar er Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri sem skrifaði í Fréttablaðið í vikunni að mál Illuga væri skólabókardæmi um óhæfan og spilltan stjórnmálamann sem ætti að axla sín skinn: \"Mér finnst vera alllnokkur heift í þessum orðum,\" segir Illugi í föstudagsviðtali Fréttablaðsins í dag: \"Mér finnst Páll Magnússon ekki gæta mikillar sanngirni í þessu sem hann er að tala um, fjárhagsstuðningi sem síðan hafi verið endurgoldinn í pólitískum stuðningi. Hið rétta í málinu er og hefur komið fram ítrekað, að, já, ég seldi íbúð okkar hjóna, fyrir því er þinglýst afsal. Við létum af hendi okkar eign. Ástæðan er sú að við vorum með töluverðar skuldir á þessari íbúð. Við lentum eins og margir í vanda eftir hrunið,\" segir Illugi í viðtalinu og bendir á að með þessu hafi þau hjónin bara verið að grynnka á skuldum: \"Það að líta á sölu íbúðarinnar sem einhvers konar fjárframlag eða peningagjöf, það bara stríðir gegn allri almennri skynsemi og síðan hitt að ég hafi einhvern veginn veitt þessu fyrirtæki óeðlilega pólitíska fyrirgreiðslu.\"

Hann metur það svo að ef menn séu að gera eitthvað sem þoli ekki dagsins ljós þá væri það alheimskulegasta að þinglýsa gerningnum: \"Ég held að í samanlagðri spillingarsögu heimsins væri þetta örugglega vitlausasta leiðin,\" segir ráðherrann og bætir því við að húsaleigan sem hann greiði stjórnarformanni Orku Energy geti vart talist slík fjárhagsleg skuldbinding að mönnum verði ekki sjálfrátt í sínum störfum sökum hagsmunatengsla; það sé fráleitt.

Hann segir einnig fráleitt að hann hafi gert Orku Energy einhvern pólitíska greiða í embætti - og bendir á að ráðherrar í fyrri ríkisstjórn hafi margoft komið að málum þessa sama fyrirtækis, hafi kynnt það, setið fundi með því og fulltrúum frá Kína: \"Fyrirtækið starfar sjálft ekki hér á landi, en það hefur verið að kaupa sérfræðiþekkingu í íslenskum víksindamönnum og sérfræðingum á undanförnum árum fyrir langleiðina að 10 milljörðum. Þannig að þetta skiptir miklu máli.\"

Hann metur það svo að eitthvað annað og meiri liggi undir þegar fyrrverandi útvarpsstjóri ræðst jafn harkalega að honum og grein hans í Fréttablaðinu bar vitni um: \"Mér finnst þessi skrif hans vera þannig að það er ekki þess virði fyrir mig að elta ólar við þau.\"

Hann kveðst þó ósáttur við sjálfan sig hvað viðbrögð sín við fréttaflutningi af málinu ölli varði, fárviðrið í fyrstu hafi verið svo mikið að einu hafi gilt hverju hann svaraði til að byrja með : \"Já, ég er mjög ósáttur við sjálfan mig. Ég hefði átt að taka allt fram strax, en ekki láta það koma í ljós seinna. Það var vitleysa hjá mér,\" segir ráðherrann í Fréttablaðinu í dag.