Illugi á veiðum með orku energy

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra var við laxveiðar með forkólfum Orku Energy í Vatnsdalsá á vestanverðu Norðurlandi á besta tíma á síðasta ári samkvæmt heimildum sem Stundin telur áreiðanlegar. Þar veiddi hann, að sögn miðilsins ásamt Hauki Harðarsyni stjórnarformanni Orku Energy sem Illugi hefur unnið fyrir en óvíst er hver greiddi fyrir veðiferð Illuga sem á þeim tíma hafði setið í ár á stóli ráðherra. Hann var ráðgjafi Orku Energy um tíma á meðan hann gaf sér hlé frá þingstörfum á síðasta kjörrtímabili.


Pétur Pétursson, leigutaki Vatnsdalsár, staðfestir aðspurður í samtali við Stundina að Illugi hafi verið við veiðar í ánni. „Ég var meira að segja að leiðsegja honum,“ segir Pétur. Illugi var einn á stöng í ánni og veiddi ásamt leiðsögumanni, eða „guide“ eins og þeir kallast.


 


 


Hagsmunatengsl hans við Orku Energy og grunur um að hann hafi hyglað fyrirtækinu á kostnað annarra keppinauta í opinberri ferð til Kína fyrr á árinu verða til skoðunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í næstu viku, sem er nefndavika, en þar verður skoðað og kallað eftir upplýsingum um fjárhagstengsl ráðherra við fyrirtækið, fyrirgreiðslu við það í opinberu embætti, hvenær og hvernig hann hefur þegið laun frá því og hvar hann hefur gert skil á þeim.