Illa hæft flugfélag – eða ritstjóri?

Þorkell Ásgeir Jóhannsson, flugstjóri hjá Mýflugi sem sér um sjúkraflug fyrir landsmenn, hefur svarað gagnrýni sem hann og félagar hans í Mýflugi hafa orðið fyrir eftir notkun á neyðarbrautinni á Reykjavíkurflugvelli.

Meðal þeirra sem hafa sakað Mýflugsmenn um bellibrögð eru Jónas Kristjánsson, bloggari og fyrrum ritstjóri DV. Í bloggpistli Jónasar sem ber fyrirsögnina „Illa flughæft Mýflug“ fer ritstjórinn þungum orðum um félagið.

Hann skrifar: „Rúmum klukkutíma fyrir lendingu boðaði flugstjóri Mýflugs fjölmiðlum lendingu á hinni umdeildu stuttbraut í Reykjavík. Þegar flugvélin lenti þar, voru allar aðrar flugvélar að lenda á langbrautunum, sem venjulega eru notaðar. Er Mýflug sneri til baka, notaði það aðra langbrautina. Þá voru fjölmiðlar ekki boðaðir. Málið var stönt eða farsi, hluti af áróðursstríði flugstjórans og félaga. Eru flugvélar Mýflugs verr en aðrar vélar til þess hæfar að lenda í Reykjavík við svona aðstæður? Gáfulegra væri þá að semja um sjúkraflug við annað félag, sem getur boðið lendingarhæfar flugvélar. Sjúklingarnir eiga það líklega skilið,“ skrifar Jónas svo eftir hefur verið tekið.

Þessu lætur Þorkell Ásgeir Jóhannsson, flugstjóri hjá Mýflugi og sá sem flaug í ferðunum með sjúklinga eins og vitnað hefur verið til, ekki ósvarað. Í færslu þar sem hann deilir skrifum Jónasar, en augljóslega með lítilli velþóknun, skrifar flugstjórinn:

 „Reyndar urðu lendingar mínar á neyðarbrautinni tvær í gærkvöldi og nótt, með samtals þrjá sjúklinga í fyrsta forgangi. Vindur stóð af háaustri og þannig mitt á milli flugbrauta 06 og 13. Þekkt er að við þær aðstæður er veruleg ókyrrð í lokaaðflugi inn á braut 13 enda var kvartað undan því fyrr í gærkvöldi. Því gerðist ég svo djarfur að falast efti braut 06 í bæði skiptin. Hins vegar er flugtak af þeirri braut bannað, en þá vill svo til að ekki er sömu ókyrrð fyrir að fara í brottfluginu frá braut 13. Illa hæfur uppgjafaritstjóri hefði e.t.v. getað kynnt sér málið áður en hann varpar fram staðhæfingum sínum.“

Fyrr í vikunni fjallaði Hringbraut um ummæli borgarstjóra sem snúa að Mýflugi og viðbrögð við þeirri frétt.

Framtíð neyðarbrautarinnar er mikið hitamál en þar stendur deilan um annars vegar öryggi sjúklinga og hins vegar landnýtingu borgarinnar.