Hörður Ríkharðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi í dag á Alþingi að ríkið væri ekki búið að gera kjarasamning við lögreglumenn. Ekkert væri að vanbúnaði til að ganga til samninga. Lögreglumenn njóti ekki verkfallsréttar og ætti ríkið að virða það sérstaklega að „þeir skipi sér á friðarstól með sínu samfélagi“ eins og þingmaðurinn orðaði það.
Hann beindi óundirbúinni fyrirspurn sinni til innanríkisráðherra, Ólafar Nordal og vildi vita afstöðu hennar. Löggur fengju þau skilaboð þar sem dregist hefði úr hömlu að ganga til samninga við þær, að störf lögreglumanna væru ekki metin að verðleikum.
Ráðherra svaraði að taka yrði sérstakt tillit til þess með nýjum samningum að lögreglumenn fórnuðu verkfallsrétti sínum. Fjármálaráðuneytið hefði samningsumboð til kjarasamninga en ekki innanríkisráðuneytið. Eigi að síður taldi Ólöf Nordal sig sjá vísbendingar um að kjaradeilu ríkis og lögreglumanna myndi ljúka farsællega með samningum innan tíðar.
Þrír þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram lagafrumvarp þar sem lagt er til að 31. grein lögreglulaga verði felld út en sú grein meinar þeim að fara í verkfall eða taka þátt í verkfallsboðun. Telja flutningsmenn að með því að hafa ekki verkfallsrétt nái löggan ekki fram tilhlýðilegum kjarabótum.