Eigandi hótelsins Ljósalands í mynni Gilsfjarðar í Dölum hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa kveikt í því, en stór hluti þessi er ónýtur eftir það mikla eldhaf sem steig upp úr því á sjötta tímanum í morgun þegar tilkynning barst um eldinn.
Þriðjungur hótelbyggingarinnar er hruninn eftir eldsvoðann, en það sem eftir stendur af húsinu er illa farið af eldi, reyk og sóti. Engin slys urðu á fólki, en þeir sem voru innandyra komust sjálfir út þegar elkdsins varð vart.
Einhver gleðskapur var í hótelinu í gærkvöld og virðist hann hafa farið úr böndunum að sögn heimamanna, en lögreglu var tilkynnt um ólæti þar innandyra undir miðnætti. Eigandinn var mjög ölvaður þegar hann var handtekinn, að sögn lögreglu.
Skemmdirnar af völdum eldsins urðu mestar í gistiálmu hótelsins og er hún ónýt, en ljóst er að stærstur hluti þess þarfnast algerra endurbóta.