Ikea lækkar vörðuverð um 2,8%

Forráðamenn IKEA á Íslandi hafa ákveðið að lækka vöruverð í verslun sinni í Kauptúni um 2,8% og hvetja jafnframt eigendur og stjórnendur annarra verslana í landinu að gera slíkt hið sama.

Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi segir við Morgunblaðið í dag að ástæður verðlækkunarinnar megi rekja til þriggja þátta; í fyrsta lagi hafi gengi íslensku krónunnar gagnvart evru styrkst sem geri innflutning til landsins í flestum tilvikum hagstæðari en áður, í annan stað hafi kjarasamningar sem undirritaðir voru fyrr á árinu verið atvinnulífinu skaplegri en stefnt hafði í um tíma - og loks hafi aukinn ferðamannastraumur til landsins styrkt svo að segja alla verslun svo um munar.

Þórarinn hvetur forkólfa verslunar í landinu að fylgja fordæmi IKEA enda búi eigendur hennar í flestum tilvikum við sömu efnahagslegu aðstæðurnar og IKEA, eins og fram kemur í máli hans í Morgunblaðinu í dag.