Ikea innkallar ferðabolla

Verslunarrisinn IKEA hvetur viðskiptavini sem eiga TROLIGTVIS ferðabolla sem merktir eru „Made in India“ til að taka þá úr notkun. Nýlegar prófanir sýna að varan losar hugsanlega meira af efnasamböndum, díbútýlþalötum (DBP,)  en sett viðmið segja til um.

Því eru eigendur þessara tilteknu ferðabolla hvattir til að skila þeim í IKEA þar sem þeir verða að fullu endurgreiddir.

TROLIGTVIS ferðabollarnir hafa verið seldir síðan í júlí 2019. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu og er hægt að nálgast nánari upplýsingar í þjónustuveri IKEA og á IKEA.is.

IKEA biðst velvirðingar á óþægindum sem þetta kanna að valda.