Íhuga að slíta viðræðum

Til greina kemur að Efling, VR, Verkalýðsfélag Akraness og Verkalýðsfélag Grindavíkur, sem hafa vísað kjaradeilu sinni til ríkissáttasemjara, slíti viðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins, náist enginn árangur á sáttafundi á morgun. Frá þessu er greint á Fréttablaðið.is.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir það til lítils að vera í viðræðum sem ekkert þokast áfram á meðan launþegar tapi. Hann segir félögin verða að gera eitthvað til að ýta viðræðum áfram og ef að lítið þokast á fundinum á morgun muni félögin skoða það alvarlega að slíta viðræðunum formlega. Leggja verði upp með aðgerðaáætlun um hvernig hægt sé að þrýsta á að „kröfum um mannsæmandi lífskjör verði mætt,“ segir Ragnar Þór í samtali við Fréttablaðið.

Aðspurður um möguleika á verkfalli segir Ragnar Þór: „Það eru engin átök í kortunum nema félagsmenn ákveði og samþykki að fara í slíkt. Það er ekki ákvörðun formanna eða samninganefnda. Við vinnum eftir kröfum sem félagsmenn samþykktu en enn sem komið er höfum við ekki fengið sýnileg viðbrögð. Það er til lítils að standa í einhverri störukeppni.“

Ragnar Þór hafði sömuleiðis talað í þessa veru í viðtali við RÚV.is í gær. Fréttablaðið.is spurði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, út í ummæli Ragnars Þórs og svaraði Halldór því til að það væri nýnæmi í samskiptum verkalýðshreyfinga og Samtaka atvinnulífsins að slíta viðræðum eftir aðeins þrjá fundi, kæmi til þess. „Við höfum átt tvo form­lega fundi á vett­vangi ríkis­sátta­semjara. Sá fyrri fór í að ríkis­sátta­semjari kallaði eftir gögnum og á þeim seinni fórum við yfir kröfu­gerðir stéttar­fé­laganna,“ segir Halldór við Fréttablaðið.