Dv segir frá því að inni á Facebook-hópnum Málfrelsið séu margir óánægðir með sjónvarpsþættina Trans sem hefja göngu sína á Stöð 2 á sunnudaginn. Í þáttunum mun Sigrún Ósk Kristjánsdóttir veita innsýn inn í líf trans-barna og fjölskyldna þeirra.
Í frétt Dv segir að íhaldsmenn láti mikið í sér heyra innan Facebook-hópsins og þeir hafa ekki legið á skoðunum sínum á þáttunum.
„Það er verið að ræna æsku og lífi þessara barna frá þeim af hugmyndafræðiknúnum siðblindum geðsjúklingum. Ef þú styður svona ertu siðblindur,“ segir einn.
Fjöldi fólks tekur undir með þeim og segja sumir að það sé feministum að kenna að fólk upplifi sig sem trans:
„Óumbreytanlegt lögmál jarðvistartilverunnar: BILUÐ FEMINISTAMÓÐIR = BILAÐ AFKVÆMI!“
Sá sem hóf umræðurnar um þættina er einnig virkilega ósáttur með þá: „Helvíti er alvöru og við erum föst í því,“ segir hann.
Það eru þó ekki allir sammála þessu og einn sá ástæðu til þess að svara málshefjanda sérstaklega:
„Það er alveg merkilegt hvað þetta er rétt hjá þér. Það að fólk eins og þú ert til, með allt þitt hatur er það nálægasta helvíti sem ég veit um. Það er alveg sláandi að þú hafir alist upp á sama landi og ég.“