Breski Íhaldsflokkurinn galt afhroð í bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í Englandi og Norður-Írlandi á fimmtudag. Flokkurinn fékk nær 38 prósentum minna fylgi en í kosningunum 2015 og tapaði 1.334 sveitarstjórnarfulltrúum. Það var þó ekki Verkamannaflokkurinn sem hagnaðist á hrakförum Íhaldsmanna, heldur tapaði hann líka töluverðu fylgi og 82 mönnum. Ástæðan fyrir hvoru tveggja er ein og sú sama: Vandræðagangur flokkanna í sambandi við Brexit. RÚV greinir frá.
Búið er að telja öll atkvæði í öllum 248 sveitarfélögum Englands, sex stórborgum þar sem kosnir voru borgarstjórar og í 11 sveitarfélögum Norður-Írlands. Fæstum kemur skellur Íhaldsflokksins á óvart en það þykir mikill áfellisdómur yfir Jeremy Corbyn og hálfvelgju hans í Brexitmálum að Verkamannaflokknum skuli ekki einungis hafa mistekist að ná óánægjufylginu frá Íhaldsflokknum, heldur hreinlega tapað fylgi.