Íhaldið varð að fá kommana í lið með sér, ella hefði illa farið fyrir því á erfiðum vetri; hægristjórn Sjálfstæðisflokks og tveggja framsóknarflokka hefði vísast aldrei lifað veturinn af, svo ófriðlega sem horfir á vinnumarkaðnum.
Þetta er mat Ritstjóranna í kvöld, en þar setjast fjölmiðlamennirnir Andrés Magnússon og Hallgrímur Thorsteinsson niður með Sigmundi Erni og rýna í helstu fréttamál líðandi stundar; miskabætur til handa lögmönnum vegna Landsdómsmálið, meint verkfallsofbeldi flugstéttanna, nýja ríkisstjórn sem virðust vera eitthvert ákall um pólitíska ró og í lokin er svo rætt um Brexit og kaflaskilin sem eru að verða í alþjóðahygggju hér í heimi.
Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00 í kvöld.