Klofningur er í röðum Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum og ekki ólíklegt að hluti flokksmanna bjóði fram sérlista í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.
Ástæðan er sögð óánægja með þá ákvörðun, að efna ekki til prófkjörs við val frambjóðenda. Haft er eftir Elís Jónssyni að yfirgnæfandi líkur séu á sérframboði, þótt endanleg ákvörðun þar að lútandi liggi ekki fyrir, en Elís mun vera í hópi þeirra sem hvað mest var áfram um að prófkjörsleiðin yrði farin.
Tillagan um prófkjör var naumlega felld í fulltrúaráði flokksins í janúar, með 28 atkvæðum gegn 26. Elís segist reiðubúinn að leiða sérframboðið, ef til þess komi, en segist líka vel geta hugsað sér að sjá einhvern annan í því hlutverki.
Samkvæmt frétt blaðsins hefur Íris Róbertsdóttir, miðstjórnarmaður í Sjálfstæðisflokknum og varaþingmaður flokksins í Suðurkjördæmi á síðasta kjörtímabili, verið nefnd í því sambandi.